stúlkan sem vissi of lítið








   
<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31

Fróðleikur:
Galdrar

Fólk sem pikkar

Toffy
Runkitz
Helga María
Heiðrún
Hlynur Ben
Sævar Jökull
Anna Rósa
Erla Björk
Guðný Gangster
Bjarki

Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


rss feed


Jul 16, 2004
blár skrúflykill

shit. það er svo erfitt að vera ég... í dag skoðaði ég aldrei þessu vant póstinn minn. þá sá ég að mér hafði verið sendur póstur með einhverju prófi í. ég skellti mér í að lesa bréfið og sá þá að bréfið var allt skrifað með rauðum stöfum. ekkert athugavert við það fannst mér. prófið var þannig að mar átti að reikna í huganum og svo átti að svara spurningu sem byrtist neðst á eftir reikningnum. svo þegar ég var búin að reyna á hugan með því að reikna dæmin í huganum kom spurningin = hugsaðu þér lit og verkfæri. það fyrsta sem mér datt í hug var blár, gulur skrúflykill og fannst mér ekkert athugavert við það. svo fletti ég neðar og sá þá fullyrðingu byrtast á skjánum. hún var "þú hugsaðir þér rauðan hamar var það ekki?" svo las ég neðar ,,98% þeirra sem taka þetta próf hugsa sér rauðan hamar en ef þú gerðir það erkki eru hluti af þeim 2% sem eru með abnormal hugsun" já það er sko erfitt að vera ég þar sem nú hef ég fengið ´það vísindalega sannað að ég sé með abnormal hugsan... efast um að þessar fregnir eigi eftir að koma mörgum á óvart... allaveganna var ég ekkert hissa. maður e´r nú helvíti töff og upp áhalds verkfærið mitt er blár skrúflykill, meina hver á ekki svoleiðis...

Posted at 01:53 pm by astan
Comments (2)

Jun 10, 2004
austfirðir og ég

já það hefur verið viss samdráttur í bloggskrifum sem lýsir sér einna helst með því að ég hef dregið úr skrifum mínum vegna leti...
það helsta sem ég hef gert á þeim tíma sem skrif hafa legið niðri er að flytja aftur út í sveit (þessi orð koma úr munni konu sem vinnur í ónefndri gleraugnabúð á laugarveginum sem greinilega sér ekki lengra en nef hennar nær). nú er ég sem sagt á austfjörðunum hjá henni mömmu minni að vinna á sjúkrahúsinu. gaman að því. svo hef ég líka komist að því að það er ekkert spennandi að vera sjómannskona. ég hef líka komist að því að mér finnst fiskiskip ekkert skemmtileg. ég er samt skemmtileg þótt mitt líf sé ekki spennandi þessa dagana. ég og hundurinn minn erum mjög mikið saman auk þess sem ég slæ garðinn og hlusta á 104 ára gamla konu tala um typpanotkun. já svo sannarlega spennandi... er að hugsa um að fara að prjóna til að brydda upp á tilbreytingum
úti á landi rúlar samt og hvet ég alla til að koma og heimsækja mig við tækifæri...

Posted at 11:58 am by astan
Comments (4)

Apr 22, 2004
Það er komið sumar

Gaman að segja frá því að nú sit ég heima í hlíðinni minni og er að fara að berja sjálfa mig til að gera verkefni í mannvist. Aumingi hugsiði, já það er kannski rétt hjá ykkur en ég hef nú nokkuð mér til málsbóta vegna þess að vera ekki byrjuð. Nú í fyrsta lagi þá á ég yndislega nágranna sem hafa nú tekið það upp hjá sér í hópum að endurbæta íbúðir sínar. Gott hjá þeim gæti nú einhver hugsað, en nei! hvers á ég að gjalda, fátækur námsmaðurinn að hlusta á borvélar og hamarshögg allan daginn og í bítið á morgnana. Ég hef því komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé samsæri gegn okkur Guðný, betur þekkt undir nafninu Illmenni nr.3. Þar sem nágrannarnir eru allir að hefna sína vegna teytisins sem haldið var hér við mikla ánægju allra í ganginum. En eftir það komumst við að því að mið nótt er nákvæmlega kl 03:00 en þá má ekki vera með hávaða. Heppnar við að vera bara með hávaða kl 02:17.
En þá víkjum við að ástæðu númer 2. Hún er sú að ég er kvefuð. Auðvitað er ég kvefuð núna, það er sól og heitt úti og nú heldur líkami minn að ég sé komin til sólarlanda og þá sprettur upp hitabeltisveikin í honum: Kvef.
Nú og svo í 3 lagi þá finnst mér bara leiðinlegt að gera verkefni á sumarddaginn fyrsta, hann er ´jú ekki svo oft...


já og svo datt mér í hug að benda á það að þar sem ég er frekar í sætarikantinum og ekki mikið annað þá var ég að fatta núna hvernig á að setja inn linka á síðuna mína og ákvað í gleði minni að skella einum inn með galdra... njótið vel... ég vil sérstaklega benda á sex-galdurinn, veit ekki hvort hann virkar og vill því gjarnan fá komment á það því heyrst hefur að ef maður spyr ekki, þá veit maður ekki...

Posted at 04:42 am by astan
Comments (1)

Apr 19, 2004
tími

já ég vil bara beina þessum skrifum mínum til þeirra sem halda því fram að ég bloggi sjldan og að það sé langt síðan ég bloggaði seinast (erla og toffy). til að réttlæta þessa afstöðu mína vil ég mynna á að tíminn er afstæður...

Posted at 05:03 am by astan
Make a comment

Apr 2, 2004
frekar svona

ok
vaknaði í morgun ótrúlega ánægð með þá staðreynd að ég væri að fara í skólann. klukkan var 7 og ég hugsaði með mér "er ég ekki að fara að faraí skólann?" já þetta er dagurinn sem ég uppgötvaði að ég er geðveik. það er þá satt,allt sem fólk hefur verið að segja við mig. hlutir eins og "Ásta, er e-ð að í hausnum á þér?" og "hefuru hugsað þér að leita til læknir út af þessu?" virtust þjóta fram hjá mér eins og ekkert væri. nú er ég farin að gruna ýmislegt, þau eru að reyna að kaupa... ú vá hvað mig langaði allt í einu í grjónagraut. hef sko ekki fengið hann lengi. oh ég ætla sko að fara að elda svoleiðis núna á eftir... heila úr gömlum vitring til að þau geti notað mig sem áttavita. hef heyrt að það gerist oft.
annars er ég bara að blogga fyrir hana erlu mína sem heldur því fram að það sé gaman að vera vond við fólk. hún segir að hún hafi heyrt að ef maður er nógu vondur við fólk í nógu langan tíma þá fer það að gleyma því að maður er í raun að vera mjög vondur og dónalegur og fer að finnast það einstaklega findið og skemmtilegt. ég hef hinsvegar heyrt að hún heyrði þessa staðreind hjá mér sem heyrði þetta í illmennisheusmínum nr1.
já kýrhausinn er nú skrítinn, já einmitt ég fór í mannvistar ferð á mán og kennaranum dattí hug að það væri gaman að fara með okkur í fjós. mér fannst ég bara vera komin heim og hennti mér í flórinn eins og belju er siður. alveg hreint (ath ég var það ekki) hvað það virtist ekki fara vel í fólk þar sem ferðin var rétt að byrja....
en hvað veit ég, ég er bara í háskóla

Posted at 03:15 am by astan
Comments (4)

Mar 25, 2004
ef ég væri hæna

 ó ef bara ég væri hæna.
var að koma úr stærðfræðiprófi. hef komist af því að ég ætla að helga lif mitt því að drepa stærðfræðikennara. því er þetta ábending til allra sem ég þekki að verða ekki stærðfræðikennarar þar sem ég mun að öllum líkindum vita hvar þið búið og koma og drepa ykkur.
annars er bara gaman því ég á afmæli á morgun og ég líka best í heimi. já svo er ég að rembast við að búa til fjöltengslaskeytistakka á vefsýniopnuna mína og hér er tilraun til að sýna myndir:myndir ef einhver hefur áhuga á að drulla eitthvað yfir þessa tilraun vil ég mynna á að ég hef sterka þörf til að meiða fólk eftir stæ.prófið.

Posted at 05:08 am by astan
Comments (1)

Mar 23, 2004
shit

er í rekstrarhagfræði og er ekki að heyra það sem kennarinn er að segja. ástæðan? nú hún er að ég var að koma úr tölfræðitíma þar sem kennarinn neitaði að vera í liði með okkur og fór yfir í liðið hans satans. Satani fannst það greinilega skemmtilegt að sjá svipinn á okkur, sem var einhvern veginn þannig að munnurinn var galopinn, augun gríðarlega stór og orðið heimskur var ritað á ennið. til að toppa þetta er ég að fara í tölfræðipróf á fimmtudaginn í valsheimilinu. hver fer í tölfræðipróf í valsheimilinu? eru valsarar í liði með kalla ben og satani?
á samt afmæli á föstudaginn og það þýðir bara eitt. ég er að færast nær dauðanum. ekki það að það sé slæmt að deyja. er ekkert hrædd við dauðann í sjálfu sér en held bara að það geti verið svo helvíti vont áður en ég dey. án þess að ég viti það þar sem ég hef aldrei hitt neinn sem hefur prófað það og fullyrt að það sé á einhvern hátt óþægilegt.
svo mætti rúna ekki í skólan, ætli hún sé að spjalla við einhvern sem hefur prófað að deyja? ég er að hugsa um að vera ekkert að prófa það þar sem ég hef heyrt að það sé vanabindandi. og er þess vegna að spá í að dansa.

Posted at 02:09 am by astan
Comments (2)

Mar 18, 2004
humm

Í tilefni af því ég var að muna eftir því ég á blogg ákvað ég að fá mér annað, það er ekkert vit í að eiga bara eitt þar sem ég hef svo mikið að segja. Er annars að velta því fyrir mér að skella mér í hvítasunnusöfnuðinn eftir stanslaust áhorf á Omega og ekki skemmir það nú að stórmyndin ,,Ástríða Krists" er að koma í bio...
er orðin hrædd. Guðný stendur upp á stól og kallast á við óskar sem er lika upp á stól... þetta er orðið ískyggilegt þegar ég er orðin heilbrygðasta manneskjan í hópnum...
og óskar er leiðinlegur en það er ekki neitt miðað við hvað snorri er ógeðslegur

Posted at 08:16 am by astan
Make a comment